Listi VG í Norðausturkjördæmi
Framboðslisti Vinstri grænna í NA-kjördæmi var samþykktur einróma á aukafundi kjördæmisráðs á Akureyri í kvöld. Edward H. Hujibens skipar fjórða sæti listans og er í baráttusæti en hann er nýkjörinn varaformaður flokksins. Steingrímur J. Sigfússon leiðir listann líkt og í síðustu kosningum.
1. Steingrímur Jóhann Sigfússon, alþingismaður, Gunnarsstöðum.
2. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður, Ólafsfirði.
3. Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupstað.
4. Edward H. Huijbens, varaformaður Vinstri grænna, prófessor, Akureyri.
5. Óli Halldórsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík.
6. Berglind Häsler, bóndi og matvælaframleiðandi, Djúpavogshreppi.
7. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Akureyri.
8. Sindri Geir Óskarsson, guðfræðingur, Dæli.
9. Þuríður Skarphéðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Egilsstöðum.
10. Hjördís Helga Seljan, grunnskólakennari, Reyðarfirði.
11. Aðalbjörn Jóhannsson, nemi, Húsavík.
12. Helgi Hlynur Ásgrímsson, sjómaður, Borgarfirði eystri.
13. Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi og varaformaður Ungra bænda, Björgum.
14. Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson, smiður, Dalvík.
15. Sif Jóhannesdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík.
16. Björn Halldórsson, bóndi, Akri, Vopnafirði.
17. Þórunn Hrund Óladóttir, kennari, Seyðisfirði.
18. Hrafnkell Freyr Lárusson, doktorsnemi, Breiðdalsvík.
19. Þorsteinn V. Gunnarsson, sérfræðingur hjá Rannís og fyrrv. rektor, Akureyri.
20. Kristín Sigfúsdóttir, fyrrv. framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi, Akureyri.
Posted in Óflokkað